Fréttir af flakki...

Lest þú blogg á vinnutíma?

27.07.2007 21:29:53 / Gústav

Góðan daginn

Ég er svo hissa, enn er fólk sem heimsækir síðuna??? Ég er amk mjög ánægður með að hafa flest annað að gera en að blogga þessa dagana. Búinn að vera í sumarfríi meirihlutan af þessum mánuði og verð fram yfir verslunarmannahelgi, síðan er það bara blessuð vinnan aftur.

Hálfgerð gúrkutíð þessa dagana í fréttunum, lítið merkilegt að gerast svo sem. Ég er reyndar hissa á því að fólk gleypi hugmyndina um að það geti kolefnisjafnað bílinn sinn með smá skógrækt(nokkrum þúsundköllum á ári). Ég ætti samt ekki að vera hissa á þessu, hugmyndin er gömul og margreynd og virkar greinilega enn. Hins vegar verð ég að segja eitt við þetta fólk sem er að hugsa um bílinn sinn og umhverfið: BÍLAR ERU EKKI UMHVERFISVÆNIR SAMA HVAÐ SAGT OG GERT ER! Blendings, dísel, grænir kolefnisjafnaðir osfrv... sorrý virkar bara ekki. Þeir eru hins vegar misslæmir hvað þetta varðar, því minna eldsneyti sem þeir eyða því skárri eru þeir. Síðan er framleiðsluferlið orkufrekt og mengandi í ofanálag. Ef fólk vill trúa því að það sé umhverfisvænt þá er það svo sem í lagi enginn skaði skeður þannig.... reyndar verður kominn afar ljótur skógur á Geitasand eftir nokkur ár sem samlagast ekki umhverfi sínu á nokkurn hátt og skilar litlu. Meiri kolefnisbinding fengist út úr þessum peningum ef þeir yrðu lagðir í skógrækt við miðbaug eða verndun þeirra skóga sem eftir eru. Það er víst hægt að selja fólki hvað sem er, þetta er svona svipað snjallt og að kaupa fótanuddtæki.

Svo það komi nú fram þá á Öldubakkafjölskyldan bíl sem er 2,2 tonn af járni og gerviefnum og eyðir 11-helling af lítrum á hundraðið. Samt hef ég ekkert samviskubit og hef ekki minnstu löngun til að borga fyrir plöntun á einhverjum hríslum sem verða aldrei annað en ljót tré á röngum stað.

Kv. Gústav


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 10:55:59 / Gústav

Minn tími er að fara!

Þrátt fyrir að hægt sé að leggja margvíslegan skilning í fyrirsögnina þá á ég við að minn tími er að fara meira og meira í vinnuna. Nú er kominn sá tími sem ég hef nánast engan tíma nema fyrir vinnu. Fer reyndar heim í sauðburð 18.maí og verð í rúma viku. Ég var að rifja upp að í fyrra vann ég 260 vinnustundir í júní, ég vonast til að sleppa léttar þetta árið!

Annars er það helst í fréttum að forláta grill birtist á sólpallinum við Öldubakkann. Við erum því fullfær um að grilla fyrir gesti. Við erum einnig búin að panta girðingarefni utan um garðinn, m.a. til að hindra óboðna gesti í að skilja stykkin sín eftir í garðinum. Það má vera að það hafist einnig af fljótlega að setja sand í sandkassan en eins og allir vita þá er sandkassi án sands ekki mikils virði.

Ég fékk sent próf um daginn sem átti að skera úr um hvaða flokk ég ætti að kjósa. Var ég beðinn um að segja afstöðu mína til helstu lykilmála. Niðurstaðan var sú að ég er pólitískt viðrini, mældist með jafnan stuðing við alla flokka.  Ég get þá kosið af handahófi og er byrjaður að læra úllen dúllen doff til að aðstoða mig í kjörklefanum, verst að ég man ekki textann nema fara með hann upphátt...

Ég geri ekki ráð fyrir að blogga mikið næstu 2 mánuði v. skorts á tíma.

Kv. Gústav 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 12:58:52 / Gústav

bla

Sælt veri fólkið

Vona að allir hafi komið vel undan páskunum, það er víst ekki ástæða til annars. Mér gekk nokkuð vel, borðaði mér ekki til óbóta nema tvisvar en verð því miður að viðurkenna að páskaeggið er ekki búið enn.

Ég var að velta fyrir mér mögulegum sumarhitting útskriftarárg. 2003(auðvitað frjálsega með farið). Þetta er spurning um stað og tíma. Persónulega lýst mér best á júlí en ég hef engan sérstakan stað í huga. Mér finnst hins vegar sjálfsagt að þeir sem hafa tíma til hittist þó ekki væri nema eina kvöldstund.

Kv. Gústav 


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 20:40:32 / Gústav

Bráðsnjallt

Hahahahaha þetta er gott

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 13:31:30 / Gústav

Helv. fyrirsagnir

Þessa daganna viðrar frábærlega til útreiða, vonandi að maður nái að nýta þá vel. Fór með bílinn í skoðun í morgun og fékk 08 miða sem er mjög gott mál þar sem það er varla hægt að segja að jeppaviðgerðir séu ódýrar.

Hafnfirðingar hljóta að vera himinlifandi eða hitt þó heldur þessa daganna. Hvernig var það aftur í tölfræðinni, á ekki að vera til eitthvað sem heitir marktækur munur? Amk finnst mér þetta vera lýsandi dæmi um hvernig huglaus bæjarstjórn forðast að taka ákvörðun í mikilvægu máli í skjóli s.k. íbúalýðræðis. Ég hef alltaf litið á þetta þannig að við kjósum fólkið til þess að taka þessar ákvarðanir fyrir okkur. Niðurstaðan er hins vegar ánægjuleg fyrir íbúa við Þjórsá sem sleppa við að vera settir á flot. Leiðinlegt reyndar fyrir bóndann sem átti að fá nýja fjósið, hann verður að sætta sig við gamla garminn enn um sinn.

Kv. Gústav 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 12:59:46 / Gústav

Að taka pólin í hæðina...

Sælinú

Ég tek hér með þann pólinn í hæðina að netinu komi ekki við hvað mér finnst um pólitík Íslands. Mér finnst hún almennt ómálefnaleg, yfirborðskennd og óheiðarleg. Þetta kom netinu nákvæmlega ekkert við en þetta er engu að síður það sem mér finnst. Svo það sé ljóst þá finnst mér verstu pólitíkusarnir vera þeir sem þykjast betri en aðrir pólitíkusar.

 Ég auglýsi því eftir lista til að kjósa! Hann þarf að vera samsettur af fólki sem m.a býr yfir eftirfarandi kostum:

1. Heiðarleika

2. Greind

3. Samvinnuhæfileikum

4. Skipulagshæfileikum

5. Hæfileika til að fjalla málefnalega um þau mál eru til umfjöllunar.

6. Getu til að setja hagsmuni heildarinnar ofar í forgang en flokkspólitíska hagsmuni.

7. Og sjálfsagt margt fleira.

Það vill reyndar svo til að þetta útilokar nánast alla sitjandi þingmenn þannig að ég þarf nýja. Þess má síðan geta að ég er í góðu skapi núna, þetta liti mun verr út ef ég væri í vondu skapi. Alþingi afgreiddi 50 frumvörp til laga síðasta dag þingstarfsins. Þau voru afgreidd í krafti meirihluta og höfðu ekki fengið þá umræðu og undirbúningsvinnu sem þau hefðu þurft. Góð vinnubrögð ekki satt?

 

Fyrir þá sem ekki hafa tekið eftir því þá er ég búinn að setja inn örfáar myndir. Ég geri hins vegar ráð fyrir að fjölga þeim með tíð og tíma þar sem fjölskyldan er einstaklega fallegt myndefni.

Kv. Gústav 


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 10:24:15 / Gústav

Upprifjun

Sagt á alþingi 22. nóvember 2005:

"Neðri virkjanirnar í Þjórsá eru mjög hagkvæmar vegna þess að þær nýta alla miðlunina sem fyrir er ofar í Þjórsársvæðinu. Núpavirkjun og síðan Urriðafossvirkjun eru að vísu ekki án umhverfisfórna. Það þarf vissulega að fara vel yfir það, en að breyttu breytanda eru þær mjög eðlilegur virkjunarkostur áður en menn ráðast í ný og óröskuð svæði"

Það skildi þó ekki vera að Steingrímur J hefði sagt þetta?  Bæði efni og orðalag athyglisvert. Í því ljósi er einnig forvitnilegt að líta á þennan tengil. Það er hið besta mál að maðurinn hafi skynsamlegar skoðanir, verst ef hann skiptir þeim út fyrir aðrar lakari.

Kv. Gústav 


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 09:31:34 / Gústav

Þvílíkt klúður

Ef einhverjir hafa hugsað sér að kjósa VG í komandi kosningum þá er kominn góður grundvöllur til að hugsa það upp á nýtt.

VG kom í veg fyrir að sala á bjór og léttvíni yrði heimiluð í almennum matvöruverslunum!!!

Ef þeir verða í næstu ríkisstjórn þá fáum við svona forsjárhyggu og miðstýringu í ómælanlegu magni.

Kv. Gústav 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 11:05:41 / Gústav

Það snjóar

Við erum að tala um að það snjóar á Suðurlandi!!! Mjög ótrúlegt vegna þess að það snjóaði í gær líka! Sérkennilegt veður hérna, Guðný fór út í búð í gær á leið í vinnuna, fór á jeppanum vegna éljagangs en einhver veðraskil voru á Hvolsvelli þar sem sól og sumar var úti þegar komið var að búðinni. Annars kann ég vel við veðurlagið á Hvolsvelli, t.d. heyrir til undantekninga að það sé vindur þarna. Þó fólk geri grín að Hvolsfjallinu vegna smæðar þá gerir það þó amk gagn öfugt við flest fjöll sem eru þó stærri og breiðari.

Ég get nú varla bloggað án þess að stjórnmál komi við sögu, skrítið mál það vegna þess að mér leiðist fyrirbærið að mestu. Hvatinn núna er eldhúsdagsumræður í gær en ég horfði á þær svona með öðru auganu. Ég eftir þetta sannfærðari, ef það var þá hægt, um tvennt:

a) Það er umtalsverður fjöldi kjaftaska á þingi, þ.e. fólk sem talar mikið en gerir lítið. Jafnvel fólk sem á erfitt með að standa við það sem það segir.

b) Það er mjög mikilvægt að fólk kynni sér málin áður en það kýs og n.b. það er ekki nóg að kynna sér málefnaskrá flokkana þar sem hún er að mestu leiti eins hjá þeim öllum. Það er t.d. staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn hefur runnið á rassinn stundum og ekki gert það sem hann hefur lofað. Það er líka staðreynd að VG hefur runnið á rassinn með að standa við það sem þeir segjast ætla að gera, jafnvel þó þeir hafi ekki verið í aðstöðu til að gera mikið! Þetta á við um alla flokkana.

Spurningin er hins vegar hvað þeir hafa staðið við?

Síðan var blessuðu fólkinu tíðrætt um umhverfismál, greinilega tískumálið í dag, sem er í sjálfu sér löngu tímabært. Ef fólk hins vegar heldur að þar reki VG skynsamlegustu stefnuna þá mæli ég með því að málin séu skoðuð betur. Þessar virkjanir sem flokkurinn stendur í móti(allt of seint) hafa einkennst af því að það er auðvelt að vera vitur eftir á. Jafnvel hagkvæmir kosti mt.t. umhverfis og aðstæðna eins og virkjanir vegna álvers á Húsavík(jarðvarmavirkjanir, ekki stíflur) lítur flokkurinn á sem óæskilega. Nú spyr ég bara af hverju er svona kostur óæskilegur? Þetta er mun umhverfisvænni framkvæmd heldur en álver í Reyðarfirði og Kárahnjúkavirkjun nokkurn tíma. Það sem þær framkvæmdir hafa hins vegar gert fyrir fólkið á Austurlandi er ótrúlegt(ég var einmitt á Austurlandi til að sjá það ) og ef álíka árangur næðist á Húsavík þá væri það ekkert minna en frábært.

Þessar virkjanir eru hins vegar bara smámál og smá ál(í alvöru þetta er auðvitað bara smáræði). Stóru málin eru t.d. hversu oft svifryk í Rvk. hefur farið yfir leyfileg mörk(langt yfir), sama fyrir Akureyri. Þetta er klárlega vont fyrir börnin okkar. Jarðvegseyðing er annað stórt mál(ég hef það fyrir reglu að blogga ekki um vinnuna þannig að fleira hef ég ekki að segja um þetta á netinu), veiðar með botnvörpu eru líka stórt mál(hvalveiðar eru hins vegar smámál) þar sem þær eyðileggja lífríki sjávarbotnsins(íslendingar gera þetta og núv. sjávarútvegsráðherra finnst þetta fínt).

Gaman þegar fólk fellur í þá gryfju að tala um alla þessa ósnortnu náttúru sem við eigum. T.d. hefur fagfólk(forstöðumaður umhverfisstofnunar t.d.) fallið í þá gryfju að mótmæla vegagerð yfir Kjöl þar sem um ósnortna náttúru sé að ræða. Þetta er auðvitað bara fyndið, í fyrsta lagi þá er vegur þarna fyrir og í öðru lagi þá eru fá svæði á landinu sem bera jafn augljós merki ofnýtingar þjóðarinnar heldur en einmitt Kjölur, sérstaklega að sunnanverðunni en þar hafði kirkjan skógar- og beitarítök ásamt því að bændur beittu hrossum nautgripum og sauðfé(mögulega svínum einnig) á skóglendið nánanst allt árið um kring.

Held þetta sé gott fyrir löngu, klára á því að varpa fram spurningu sem birtist í mogganum um daginn í aðsendri grein.

"Hvað gerist ef öll svín á höfuðborgarsvæðinu prumpa í einu?"

Kv. Gústav


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 10:43:07 / Gústav

Óþægilegt...

Ef þið hafið tækifæri til skuluð þið sjá myndina inconvinient truth með Al Gore í aðalhlutverki.

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 12:33:32 / Gústav

Stjórnmál aftur

Ég hitti mann í gær, góðan og samviskusaman bónda sem skiptir sér ekki af pólitík að öðru leiti en því að hann kýs sennilega X-B með nokkuð reglulegu millibili. Af einhverjum ástæðum fórum við að ræða stjórnmál og hann spurði mig, sennilega eftir að ég hafði sagt honum að mér þætti þörf á einhverjum breytingum, hvort ég hefði upplifað vinstri stjórn? Ég svaraði því til að ég hefði nú sennilega verið á lífi en ekki tekið eftir því. Þá sagði hann mér að svartasta tímabil sem hann hefði upplifað sem bóndi hefði verið þegar það var vinstri stjórn á Íslandi og að það hafi verið verst þegar Steingrímur Sigfússon hefði verið landbúnaðarráðherrra. Hann vildi einnig meina að þetta erfiða tímabil hafi ekki endilega einskorðast við bændur.

 

Í framhaldi af þessu fór ég að velta fyrir mér skýringunum á fylgisaukningu Vinstri grænna, las ma. vefsíðuna hjá þeim og þar kíkti ég yfir fyrirbæri sem heitir málefnabók. Ég sá ekki betur en þar stæði svipað rugl og hjá öðrum flokkum þannig að ekki skýrði það fylgisaukninguna fyrir mér. Næsta skýring er sú að fólk sem er á móti virkjunum styður væntanlega VG. Ég held svei mér þá að það og mælskur formaður(sem jafnframt er kjaftaskur og miðstýringarfíkill) skýri að nokkru þessa fylgisaukningu.

Síðan er það mín tilfinning að mikið af fólki á mínum aldri og etv allt upp í 35 ára styðji VG. Þetta er fólk sem man ekki eftir því hvernig vinstri stjórn virkar.

Því held ég að stuðningur við VG eigi sér skýringar í múgæsingu og gleymsku. Stuðningur við Samfylkinguna verður ekki skýrður með jafn veigamiklum rökum og hjá VG.

Mín skilaboð til ykkar tveggja sem lesið síðuna hjá mér felast í eftirfarandi spakmælum:

1. Grasið er ekki grænna hinu megin við lækinn.

2. Það á ekki að breyta breytinganna vegna.

3. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.

4. Að athuga málið sjálf og láta ekki glepjast af stóryrtum afturhaldskommatittum og umhverfisstefnu sem snýst fyrst og fremst um að mótmæla sumum virkjunum, hefur t.d. einhver heyrt að VG geri athugasemdir við að Hellisheiðin sé eins og svissneskur ostur?

Kv. Gústav


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 11:34:18 / Gústav

Enn um sauðfjársamning

Svona fyrst ég og aðrir eru að blogga um sauðfjársamning þá finnst mér fínt að eftirfarandi komi fram:

# Niðurfelling útflutningsskyldu leiðir til aukins frelsis afurðastöðva til að versla við þá aðila sem þeim líkar og flytja kjöt á þann markað sem gefur best. Með útflutningsskyldu var tryggt að til væri kjöt til útflutnings en einnig var takmarkað það magn sem hægt var að flytja út og afurðastöðvar neyddust því til að taka hverju sem stóru innlendu verslunarkeðjunar réttu að þeim,  þ.e þeir voru skyldugir til að selja ákv. hlutfall vöru innanlands. Nú verður það hins vegar ekki málið og ef það hentar þá getur farið með lambakjöt eins og þorsk, þ.e. að nánast allt verði flutt út ef þar er markaðurinn sem gefur best.

Ég spái því að þetta sé það atriði í nýja samningum sem er líklegast(af fáum útvöldum) til að bæta hag bænda.

Ég tek seinna fyrir laumuspilið sem var haft við að gera samninginn og þá furðulegu staðreynd að aðeins völdum hópi hagsmunaaðila var hleypt að samningagerðinni.

Kv. Gústav 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 09:33:02 / Gústav

Sauðfjársamningur

Í tilefni af því að búið er að búa til þennan gríðarlega samning þá langar mig til þess að koma eftirfarandi frá mér:

1) Samningurinn tryggir aðilum búsettum á lögbýlum sem ekki eru með sauðfé rétt á byggðatengdri greiðslu. Þarna hefur stéttarfélag sauðfjárbænda sem sagt séð ástæðu til að styrkja aðila utan eigin vébanda. Ef þið efist um að þetta sé rétt hjá mér þá getið þið lesið grein 4.7 í samningum. Þarna er ekki um háa upphæð að ræða en mér finnst hugsunin á bak við þetta mjög fáránleg.

2) Jöfnunargreiðslum breytt í ærgildi sbr. gr. 3.1. Gott mál að fella niður jöfnunargreiðslur. Hitt er annað mál að markaðsvirði 17.600 ærgilda er 400-500 milljónir. Þeir verða glaðir þeir bændur sem hafa haft jöfnunargreiðslur.

3) Liður 4.5 um nýliðunar og átaksverkefni er snjall. Þar eru m.a. 35 milljóna pottur sem nýir búskaparaðilar geta sótt í til að styrkja bústofnskaup. Þá er bara eftir að finna smáaura fyrir jörð, greiðslumarki, vélum.... Heldur einhver að það skipti í alvörunni einhverju máli ef kaupa á jörð fyrir 100 milljónir að fá styrk til bústofnskaupa?

4) Niðurfelling útflutningsskyldu er góð og ekki orð um það meir. Ef sauðfjárrækt á að vera atvinnugrein þarf hún að vera í tengslum við markaðinn og öll miðstýring greinarinnar er vond.

5) Ein spurning að lokum svona til gamans: Á gildistíma gamla samningsins var það almennt viðurkennt að hagur bænda hefði skánað en hann væri samt enn mjög slæmur, m.a. væru laun en undir fátækramörkum. Hverju ætla menn þá að breyta með því að gera annan samning sem er nánast eins og sá fyrri??

Hvort sem SUS lásu samninginn eða ekki þá höfðu þeir rétt fyrir sér, hann er lélegur og hann er það af því að hæstvirtur landbúnaðarráðherrra vildi ekki ganga í róttækar breytingar rétt fyrir kosningar. Hins vegar er róttækra breytinga enn þörf og það heilt yfir í öllu styrkjakerfi til landbúnaðar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 14:36:43 / Gústav

Gleðilegt nýtt ár

Sælar verið þið fáu hræður sem kíkið á þessa síðu. Það er full ástæða til að óska ykkur gleðilegs nýs árs og velfarnaðar. Ég vona að þið verðið aðeins minna þrjósk í framtíðinni og ekki sífellt að kíkja á hálfdauðar bloggsíður illa þenkjandi manna.

Hallfríður taldi sig hafa efni á því að skamma mig fyrir bloggleysi. Ég sé samt ekki betur en að síðasta færsla hennar sé dagsett 27. október 2006. Það var á síðasta ári svona til upplýsingar. Reyndar gæti hún hafa tekið upp nýja síðu en þá hefur hún ekki látið mig vita af einhverjum ástæðum.

Öldubakkafólkið segir annars gott af sínum ferðum en engar sérstakar fregnir þó, amk ekki neitt sem er sett á netið enda varasamur tjáningarmáti. Í þessu sambandi vil ég minna fólk á að koma í kaffi ef það á leið hjá Hvolsvelli. Ef fólk myndi eftir því þá væri etv gott að hafa samband við okkur og tryggja að við séum heima en það eru ekki miklar líkur á því svona alla jafna þar sem við erum með hross á húsi í Þúfu. Góð leið til að hafa samband getur verið gsm hjá mér 863-0127. Önnur góð leið er tölvupóstur(gustavma@simnet.is). Ef þetta er ekki að virka fyrir ykkur getið þið prófað hugskeyti nú eða hreinlega að kalla!! Þið erum amk velkomin.

Svona í lokin vil ég minna á að höfðinginn á heimilinu tvöfaldar aldur sinn næstkomandi laugardag. Tíminn líður hratt ekki satt?
Kv. Gústav

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 14:46:29 / Gústav

jájájá

Þá má loksins segja að heimilið sé orðið tæknivætt. Við erum komin með Skjáinn og þar með einhverja fleiri tugi stöðva. Verst maður er alltaf að missa af einhverju. Þessu fylgir mjög svo sniðugur möguleiki en það er vídeóleiga yfir netið. Við prufukeyrðum þetta í gær og það virkar fínt. Það má búast við því að heimilisfólkið verði límt við skjáinn sem aldrei fyrr, næsta mál er að endurraða aðeins svo ísskápurinn sé næstur sófanum.
Kv. Gústav

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5